Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 17:24
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Jafnt hjá ÍA og Þór
Jón Gísli skoraði eftir laglegt einstaklingsframtak.
Jón Gísli skoraði eftir laglegt einstaklingsframtak.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 1 - 1 Þór
1-0 Jón Gísli Eyland Gíslason ('64)
1-1 Peter Ingi Helgason ('87)

ÍA og Þór áttust við í Akraneshöllinni í Lengjubikarnum í dag og var staðan markalaus í leikhlé.

Skagamenn fengu hættulegasta færið í fyrri hálfleik og var með ólíkindum að þeim hafi ekki tekist að koma boltanum í netið eftir mikinn atgang á vítateig gestanna, en Aron Birkir Stefánsson bjargaði meistaralega.

Í síðari hálfleiknum náðu heimamenn forystunni þegar Jón Gísli Eyland Gíslason skoraði eftir frábært einstaklingsframtak. Hann vann boltann hátt uppi á vellinum, komst inn á vítateig og skoraði með laglegu skoti sem fór í slána og inn.

Skagamenn héldu forystunni allt þar til á lokamínútunum þegar Einar Freyr Halldórsson lagði upp jöfnunarmark fyrir Peter Inga Helgason, svo lokatölur urðu 1-1.
Athugasemdir
banner