Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 22:19
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Maximin innsiglaði sigurinn - Endrick sá rautt
Mynd: Lens
Mynd: EPA
Mynd: Lyon
Lens endurheimti toppsæti frönsku deildarinnar með sigri gegn Rennes í dag.

Gestirnir í liði Rennes tóku forystuna snemma leiks en misstu hana niður og enduðu á að tapa 3-1.

Odsonne Edouard, fyrrum leikmaður Crystal Palace, skoraði jöfnunarmarkið fyrir Lens undir lok fyrri hálfleiks og náði Ruben Aguilar forystunni snemma í síðari hálfleiks en lét svo reka sig af velli.

Allan Saint-Maximin er nýkominn til Lens eftir stutta dvöl í Mexíkó og kom hann inn af bekknum til að spila síðasta hálftímann, enda leiftursnöggur og teknískur - tilvalinn fyrir skyndisóknarbolta leikmanni færri. Sú skipting átti eftir að skila sér þegar Saint-Maximin innsiglaði sigurinn á 78. mínútu.

Lens er með eins stigs forystu á stórveldi Paris Saint-Germain eftir þennan sigur, en PSG á leik til góða. Lens er búið að vinna 13 af síðustu 14 leikjum sínum í öllum keppnum.

Lyon er líka á rosalegri siglingu og skóp sigur á útivelli gegn Nantes í dag þrátt fyrir að spila síðasta hálftímann leikmanni færri, rétt eins og Lens gerði.

Lyon vann tólfta leikinn sinn í röð í öllum keppnum þökk sé marki frá Pavel Sulc í fyrri hálfleik og frábærum varnarleik í þeim síðari.

Brasilíska ungstirnið Endrick fékk að líta beint rautt spjald fyrir að sparka viljandi í andstæðing þegar hálftími var eftir en liðsfélagar hans vörðust mjög vel á lokakaflanum til að landa sigrinum.

Lyon er í þriðja sæti með 42 stig eftir 21 umferð, sjö stigum á eftir Lens.

Að lokum hafði Brest betur gegn Lorient og eru tvö stig sem skilja á milli liðanna um miðja deild.

Lens 3 - 1 Rennes
0-1 Esteban Lepaul ('8)
1-1 Odsonne Edouard ('41)
2-1 Ruben Aguilar ('54)
3-1 Allan Saint-Maximin ('78)
Rautt spjald: Ruben Aguilar, Lens ('56)

Nantes 0 - 1 Lyon
0-1 Pavel Sulc ('25)
Rautt spjald: Endrick, Lyon ('61)

Brest 2 - 0 Lorient
1-0 Remy Labeau Lascary ('50)
2-0 Ludovic Ajorque ('77)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner