Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
banner
   sun 08. febrúar 2026 14:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Stefán Teitur opnaði markareikninginn
Mynd: Hannover 96
Stefán Teitur Þórðarson opnaði markareikninginn sinn fyrir Hannover í dag þegar liðið vann Holstein Kiel í næst efstu deild í Þýskalandi.

Stefán byrjaði á bekknum en kom inn á 72. mínútu. Sex mínútum síðar var hann aleinn inn á teignum og William Kokolo fann hann og Íslendingurinn skoraði af öryggi og innsiglaði 3-1 sigur liðsins.

Sjáðu markið hér

Þetta var þriðji sigur liðsins í röð en Hannover er í 5. sæti með 38 stig eftir 21 umferð, aðeins stigi frá umspilssæti.

Valgeir Lunddal Friðriksson kom inn á þegar hálftími var til loka venjulegs leiktíma í 1-1 jafntefli Dusseldorf gegn Karlsruher. Dusseldorf er í 13. sæti með 24 stig.

Lúkas Petersson var í markinu hjá varaliði Hoffenheim þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Hansa Rostock í þýsku C-deildinni. Hoffenheim er í 11. sæti með 32 stig eftir 23 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner