Angelo Fabiani, yfirmaður íþróttamála hjá Lazio, segir að dvöl franska miðjumannsins Matteo Guendouzi hjá félaginu hafi á köflum verið kvöl og pína.
Guendouzi eyddi tveimur og hálfu ári hjá Lazio. Hann kom fyrst á láni frá Marseille í lok ágúst 2023 og var síðan keyptur ári síðar til félagsins.
Hann yfirgaf Lazio í þessum mánuði og samdi við Fenerbahce þar sem hann hefur verið að gera gott mót.
Fabiani segir að það hafi oft verið erfitt að eiga við franska leikmanninn.
„Fólk getur haft sínar skoðanir á því hvort við höfum fundið einhvern í stað Guendouzi. Það mun ráðast á vellinum. Ég á í frábæru sambandi við Guendouzi, en daginn eftir að hann yfirgaf félagið breyttist hann í einhverskonar lærisvein Mariu Goretti (eins og hann væri alger engill eða saklaus fótboltamaður), en var ógeðslega erfiður þegar hann var í Lazio. Hann var endalaust í því að láta reka sig af velli og gerði bara það sem honum sýndist.“
„Þetta er ekki hlutlægni. Guendouzi tók ákvörðun um að fara og vildi það. Ég neyði engan til að vera hér, eins og ég geri með Alessio Romagnoli,“ sagði Fabiani.
Hjá Lazio efaðist enginn um gæði Guendouzi, en hegðun hans utan vallar var ekki ásættanleg að mati stjórnarinnar og því best í stöðunni að láta leiðir skiljast.
Athugasemdir



