Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 22:43
Ívan Guðjón Baldursson
Kristian skoraði - Logi í byrjunarliði
Mynd: EPA
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliðinu hjá Twente og skoraði fjórða markið í stórsigri gegn Heerenveen í hollensku deildinni í kvöld.

Twente fór létt með andstæðinga sína og skóp 5-0 sigur sem fleytir liðinu upp í sjötta sæti deildarinnar, með 34 stig eftir 22 umferðir.

Logi Tómasson byrjaði í vinstri bakvarðarstöðunni hjá Samsunspor sem tók á móti Trabzonspor í tyrkneska boltanum í dag. Hann spilaði fyrsta klukkutímann og var skipt af velli í stöðunni 0-1.

Ekki skánuðu málin fyrir Samsunspor sem endaði á að fá tvö mörk á sig til viðbótar eftir að Logi var farinn af velli, svo lokatölur urðu 0-3. Samsunspor er í sjöunda sæti eftir þetta tap, níu stigum frá sambandsdeildarsæti.

Í pólsku deildinni hafði Lech Poznan betur á útivelli gegn Gornik Zabrze en Gísli Gottskálk Þórðarson var ónotaður varamaður. Lech er í sjöunda sæti í afar jafnri deild, með 29 stig eftir 20 umferðir - aðeins sex stigum á eftir toppliðinu.

Þá fóru æfingaleikir fram í dag þar sem Aarhus Fremad gerði tíu marka jafntefli við varaliðið hjá HSV, Fredrikstad lagði Elfsborg að velli og Djurgården sigraði Västerås. Ariana gerði að lokum jafntefli við Olympic.

Twente 5 - 0 Heerenveen
1-0 Ramiz Zerrouki ('19)
2-0 Mats Rots ('30)
3-0 Daan Rots ('54)
4-0 Kristian Nökkvi Hlynsson ('63)
5-0 Sam Lammers ('84)

Samsunspor 0 - 3 Trabzonspor

Gornik Zabrze 0 - 1 Lech Poznan

Aarhus Fremad 5 - 5 HSV II

Elfsborg 0 - 2 Fredrikstad

Vasteras 0 - 1 Djurgarden

Olympic 1 - 1 Ariana

Athugasemdir
banner