Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   lau 07. febrúar 2026 19:25
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Frábær endurkomusigur ÍR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 4 - 3 KA
0-1 Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('41)
1-1 Emil Nói Sigurhjartarson ('44)
1-2 Valdimar Logi Sævarsson ('45+1)
2-2 Emil Nói Sigurhjartarson ('54)
3-2 Birgir Baldvinsson ('58, sjálfsmark)
3-3 Halldór Atli Kristjánsson ('76, sjálfsmark)
4-3 Guðjón Máni Magnússon ('94)

ÍR og KA áttust við í Lengjubikarnum í dag og úr varð stórskemmtilegur slagur þar sem liðin skiptust á að taka forystuna.

Staðan var markalaust þar til á 41. mínútu þegar Guðjón Ernir Hrafnkelsson tók forystuna fyrir gestina frá Akureyri sem heimsóttu Egilshöllina.

Emil Nói Sigurhjartarson jafnaði skömmu síðar fyrir ÍR en aftur náðu gestirnir forystunni áður en flautað var til leikhlés, með marki frá Valdimar Loga Sævarssyni.

KA leiddi því í hálfleik en Emil Nói jafnaði metin snemma í síðari hálfleik, skömmu áður en ÍR-ingar tóku forystuna í fyrsta sinn þegar Birgir Baldvinsson varð fyrir því óláni að gera sjálfsmark.

Breiðhyltingar leiddu í tæplega 20 mínútur þar til Halldór Atli Kristjánsson endurlaunaði Akureyringum greiðann með sjálfsmarki á hinum endanum.

Þá var staðan orðin jöfn á nýjan leik og leituðu bæði lið að sigurmarki á lokakaflanum. Það var á 94. mínútu sem Guðjón Máni Magnússon setti boltann í netið fyrir ÍR og reyndist þetta markið sem réði úrslitum. Lokatölur 4-3.
Athugasemdir
banner
banner