Chelsea kallaði Mamadou Sarr til baka úr láni frá Strasbourg á dögunum eftir að það var ljóst að félagið missti af Jeremy Jacquet, leikmanni Rennes, sem ákvað að semja við Liverpool.
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, þekkir Sarr vel en þeir unnu saman hjá Strasbourg.
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, þekkir Sarr vel en þeir unnu saman hjá Strasbourg.
„Það vita allir hvað mér finnst um Mamadou, hann hefur möguleika á því að verða heimsklassa miðvöður. Ég er mjög ánægður að hann sé hérna og ég þakka yfirmanni fótboltamála og stjórninni fyrir að styðja ákvörðunina sem ég taldi rétta fyrir okkur hann fyrir ferilinn hans," sagði Rosenior.
„Hann mun fá sitt tækifæri en hann veit að hann þarf að berjast fyrir því af því við erum með marga frábæra miðverði í hópnum."
Athugasemdir



