Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   mán 09. febrúar 2026 10:30
Kári Snorrason
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Lengjudeildin
Guðmundur skrifaði undir samning út árið.
Guðmundur skrifaði undir samning út árið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Smári tók við sem nýr þjálfari Njarðvíkur eftir tímabil.
Davíð Smári tók við sem nýr þjálfari Njarðvíkur eftir tímabil.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Magnússon gekk í raðir Njarðvík í gær og skrifaði undir samning út árið við félagið. Hann hefur verið samningslaus frá því hann yfirgaf Fram í upphafi árs en á síðasta tímabili lék hann með Fram og síðar með Breiðabliki seinni hluta tímabils.

Njarðvíkingar hafa verið afar öflugir á leikmannamarkaðnum í vetur og er ljóst að félagið stefnir á að tryggja sér sæti í efstu deild.

Stefán Marteinn Ólafsson, fréttaritari Fótbolta.net, ræddi við Guðmund í tilefni félagaskiptanna.

„Tilfinningin er mjög góð, ég er mjög spenntur fyrir því verkefni sem framundan er hér í Njarðvík. Þetta er búið að taka í kringum tíu daga. Við töluðum fyrst saman í byrjun janúar ég og Davíð. Ég varð strax mjög spenntur.“

„Við erum mættir hingað til að skrifa söguna og koma Njarðvík upp,“ segir Gummi en Njarðvík hefur aldrei leikið í efstu deild.

„Ég hef tvisvar tekið þátt í að komast upp úr þessari deild. Tvö mjög ólík tímabil. Í fyrra skiptið komst ég upp með Víkingi Ó. í fyrsta sinn, það var helvíti gaman. Síðan fór ég í gegnum taplaust tímabil með Fram, sem var aðeins öðruvísi. Ég reyni að nýta reynsluna úr báðum þeim skiptum í að koma Njarðvík upp.“

Var einhver sölupunktur sem þurfti að ná þér til Njarðvíkur?
„Það þurfti ekki að sannfæra mig mikið. Ég hef tvisvar áður verið nálægt því að spila undir stjórn Davíðs og við vorum sammála um það að það væri kominn tími til núna.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner