Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   lau 07. febrúar 2026 13:55
Brynjar Ingi Erluson
Jafnaði spjaldamet Kaboul og fær fjögurra leikja bann
Cristian Romero sá rauða spjaldið gegn Man Utd í dag
Cristian Romero sá rauða spjaldið gegn Man Utd í dag
Mynd: EPA
Argentínski miðvörðurinn Cristian Romero verður ekki með í næstu fjórum leikjum Tottenham eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið gegn Manchester United á Old Trafford í dag.

Romero fór í seina tæklingu á Casemiro og var réttilega rekinn af velli.

Þetta var fjórða rauða spjaldið sem hann fær í ensku úrvalsdeildinni og jafnaði hann þar með félagsmetið hjá Tottenham sem var áður í eigu Younes Kaboul.

Hann hefur nú fengið sex rauð spjöld í öllum keppnum frá því hann kom til Tottenham árið 2021 en enginn úrvalsdeildarleikmaður hefur fengið fleiri rauð spjöld á þessum tíma.

Undir eðlilegum kringumstæðum væri Romero aðeins á leið í þriggja leikja bann, en þar sem þetta er annað rauða spjaldið sem hann fær í deildinni á þessu tímabili fær hann einn aukaleik í bann.

Leikirnir verða því níu sem Romero missir af vegna spjalda á þessari leiktíð og enn nóg af leikjum eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner