Markvörðurinn bráðefnilegi Tómas Blöndal-Petersson er búinn að gera tveggja ára samning við stórveldi Vals.
Tómas er fæddur árið 2009 og er með átta leiki að baki fyrir U17 og U18 landslið Íslands. Hann er sonur handboltagoðsagnarinnar Alexanders Peterssonar og yngri bróðir Lúkasar sem leikur með varaliði Hoffenheim í þriðju efstu deild í Þýskalandi.
Tómas er efnilegasti markvörður landsins í sínum árgangi og verður spennandi að fylgjast með þróun hans á næstu árum. Hann hefur staðið sig vel á æfingum og í leikjum með meistaraflokki Vals í vetur.
„Félagið er afar ánægt með að Tómas hafi ákveðið að skrifa undir sinn fyrsta samning við Val, enda er það skýr stefna félagsins að leggja ríka áherslu á þróun og uppbyggingu ungra leikmanna. Tómas hefur sýnt stöðugar framfarir, faglegt hugarfar og sterkan karakter, eiginleika sem skipta sköpum fyrir leikmenn sem stefna langt," segir meðal annars í tilkynningu frá Val.
Athugasemdir




