Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 20:57
Ívan Guðjón Baldursson
„Illt í höndinni eftir að hafa lamið í hurðina"
Chelsea er búið að vinna sjö leiki undir stjórn Rosenior og tapa tveimur, báðum gegn Arsenal.
Chelsea er búið að vinna sjö leiki undir stjórn Rosenior og tapa tveimur, báðum gegn Arsenal.
Mynd: EPA
Úlfarnir eru svo gott sem fallnir úr úrvalsdeildinni þó það séu enn þrettán umferðir eftir af deildartímabilinu.
Úlfarnir eru svo gott sem fallnir úr úrvalsdeildinni þó það séu enn þrettán umferðir eftir af deildartímabilinu.
Mynd: EPA
Cole Palmer var besti leikmaður vallarins í sigri Chelsea gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í fyrri hálfleik.

Fyrstu tvö mörkin skoraði hann af vítapunktinum og þriðja gerði hann eftir laglegan undirbúning frá Marc Cucurella. Úlfarnir voru sterkari aðilinn eftir leikhlé en náðu aðeins að klóra í bakkann með einu marki, svo lokatölur urðu 1-3.

„Við spiluðum stórkostlegan fótbolta í fyrri hálfleik. Við breyttum kerfinu aðeins og strákarnir voru svo fljótir að læra inn á það. Við vildum halda þessu áfram í síðari hálfleik en Úlfarnir eiga hrós skilið fyrir flotta frammistöðu eftir leikhlé. Öll lið í úrvalsdeildinni eru góð í fótbolta, þeir sýndu það," sagði Liam Rosenior þjálfari Chelsea við fréttamenn eftir lokaflautið.

„Það eru vonbrigði að seinni hálfleikurinn var ekki jafn góður og sá fyrri hjá okkur en þetta er sigur á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. Við förum heim ánægðir með stigin og setjum einbeitinguna okkar á næsta leik sem er strax á þriðjudag."

Rob Edwards þjálfari Wolves var mjög reiður eftir fyrri hálfleikinn og ræddi um frammistöðu sinna manna að leikslokum.

„Mér er illt í höndinni eftir að hafa lamið í hurðina í reiði minni áðan. Við byrjuðum leikinn vel en nokkur glórulaus mistök kostuðu okkur dýrt. Við megum ekki gefa svona gæðamiklum andstæðingum þrjú mörk á silfurfati. Þetta var ævintýralega lélegur varnarleikur," sagði Edwards, sem hefur látið menn heyra það í búningsklefanum.

„Þessi mörk sem við gáfum þeim í fyrri hálfleik drápu alla stemningu í strákunum en ég er mjög ánægður með viðbrögðin eftir leikhléð. Við mættum grimmir út í seinni hálfleikinn og unnum hann, en við vissum að það þyrfti eitthvað mjög mikið til að við kæmum alla leið til baka úr þessu.

„Strákarnir sýndu kjark og börðust eins og ljón í seinni hálfleiknum. Ég er ánægður með það útaf því að það hefði verið vandræðalegt fyrir okkur alla hefðum við gert sömu mistök líka eftir leikhléð og tapað þessum leik með stærri mun."

Athugasemdir
banner
banner