Stjarnan 5 - 3 Þór/KA
1-0 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('7)
1-1 María Dögg Jóhannesdóttir ('14)
2-1 Karen María Sigurgeirsdóttir, sjálfsmark ('32)
3-1 Snædís María Jörundsdóttir ('46)
4-1 Birna Jóhannsdóttir ('56)
4-2 Elísa Bríet Björnsdóttir ('63)
4-3 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('85)
5-3 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('88)
1-0 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('7)
1-1 María Dögg Jóhannesdóttir ('14)
2-1 Karen María Sigurgeirsdóttir, sjálfsmark ('32)
3-1 Snædís María Jörundsdóttir ('46)
4-1 Birna Jóhannsdóttir ('56)
4-2 Elísa Bríet Björnsdóttir ('63)
4-3 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('85)
5-3 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('88)
Gríðarlega fjörugum leik var að ljúka í fyrstu umferð Lengjubikars kvenna. Stjarnan og Þór/KA áttust við og úr varð mikil markaveisla.
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir kom Garðbæingum yfir snemma leiks en María Dögg Jóhannesdóttir jafnaði metin.
Stjarnan tók forystuna á ný þökk sé sjálfsmarki og var staðan 2-1 í leikhlé.
Í síðari hálfleik virtust heimakonur vera búnar að gera út um leikinn þegar þær bættu tveimur mörkum við á fyrstu tíu mínútunum svo staðan var orðin 4-1.
Gestirnir frá Akureyri gáfust þó ekki upp og tókst þeim að minnka muninn niður í eitt mark til að gera lokakaflann spennandi.
Sú spenna lifði þó ekki lengi því Úlfa Dís var mætt til að innsigla sigur Stjörnunnar með síðasta marki leiksins. Lokatölur 5-3.
Athugasemdir



