Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   mán 09. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópa í dag - Leita enn að fyrsta sigri ársins
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er einn leikur á dagskrá í ítalska boltanum í kvöld og einn í spænska boltanum.

Á Ítalíu er það Lazio sem á heimaleik gegn nýliðum Sassuolo á Ólympíuleikvanginum í Róm.

Lazio hefur átt mikið vonbrigðatímabil og er búið að síga niður í neðri hluta deildarinnar. Þar eru lærlingar Maurizio Sarri fjórum stigum á eftir Sassuolo sem er búið að vinna síðustu þrjá leiki sína í röð.

Bæði lið sigla lygnan sjó og geta í besta falli gert atlögu að ólíklegu sambandsdeildarsæti á lokahnykk tímabilsins.

Á Spáni tekur spútnik lið Espanyol á móti botnliði Real Oviedo. Espanyol þarf á sigri að halda eftir hörmulegt gengi á nýju ári.

Espanyol var að gera sig líklegt til að berjast um meistaradeildarsæti fyrir áramót, en liðið er ekki búið að vinna einn einasta leik á nýju ári.

Espanyol er búið að spila níu leiki á árinu, sex þeirra hefur lokið með tapi og þremur með jafntefli.

Serie A
19:45 Lazio - Sassuolo

La Liga
20:00 Espanyol - Oviedo
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
10 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
11 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 27 22 1 4 72 26 +46 67
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Atletico Madrid 27 16 6 5 46 25 +21 54
4 Villarreal 27 17 3 7 50 32 +18 54
5 Betis 27 11 10 6 42 34 +8 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 27 9 8 10 40 41 -1 35
9 Getafe 27 10 5 12 23 29 -6 35
10 Athletic 27 10 5 12 30 37 -7 35
11 Osasuna 27 9 7 11 32 32 0 34
12 Valencia 27 8 8 11 30 41 -11 32
13 Vallecano 27 7 10 10 27 33 -6 31
14 Sevilla 27 8 7 12 35 42 -7 31
15 Girona 27 7 10 10 28 43 -15 31
16 Alaves 27 7 6 14 25 37 -12 27
17 Elche 27 5 11 11 35 41 -6 26
18 Mallorca 27 6 7 14 31 44 -13 25
19 Levante 27 5 7 15 29 45 -16 22
20 Oviedo 26 3 8 15 16 43 -27 17
Athugasemdir
banner
banner