Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 20:17
Ívan Guðjón Baldursson
Mark og stoðsending hjá Wijnaldum dugði ekki til
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hollendingurinn öflugi Georginio Wijnaldum var með fyrirliðabandið þegar Al-Ettifaq tók á móti Al-Riyadh í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag.

Wijnaldum skoraði og lagði upp í fyrri hálfleik áður en Leandro Antunes minnkaði muninn fyrir leikhlé.

Antunes jafnaði metin í síðari hálfleik og gerði Mamadou Sylla dramatískt sigurmark í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 2-3 fyrir Al-Riyadh sem hafði lent tveimur mörkum undir.

Marek Rodák varði mark Al-Ettifaq í leiknum og átti Moussa Dembélé stoðsendingu. Ondrej Duda og Álvaro Medrán voru einnig meðal byrjunarliðsmanna.

Al-Ettifaq siglir lygnan sjó í efri hluta deildarinnar eftir þetta óvænta tap. Al-Riyadh tryggði sér aftur á móti afar dýrmæt stig í fallbaráttunni.

Damac og Al-Qadsiah skildu þá jöfn. Valentín Vada og Nahitan Nández, fyrrum leikmenn úr Ligue 1 og Serie A, skoruðu mörkin.

Þetta er skellur fyrir Al-Qadsiah sem er núna fimm stigum frá meistaradeildarsæti á meðan Damac er í harðri fallbaráttu.

Mateo Retegui, Otávio og Nacho Fernández voru einnig meðal byrjunarliðsmanna hjá Al-Qadsiah ásamt markavélinni Julian Quinones.

Al-Ettifaq 2 - 3 Al-Riyadh
1-0 Georginio Wijnaldum ('5)
2-0 Khalid Al-Ghannam ('33)
2-1 Leandro Antunes ('38)
2-2 Leandro Antunes ('54)
2-3 Mamadou Sylla ('93)

Damac 1 - 1 Al-Qadsiah
0-1 Nahitan Nandez ('35)
1-1 Valentin Vada ('37)
Slapp
banner