Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 20:21
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: Fjögur sjálfsmörk í sjö marka sigri
Kvenaboltinn
Mynd: Vestri
Vestri 7 - 0 Smári
1-0 Freyja Rún Atladóttir ('10 )
2-0 Emma Sigrún Jónsdóttir ('15, sjálfsmark)
3-0 Raniyah Ajanai Marie Burton ('38 )
4-0 Raniyah Ajanai Marie Burton ('43 )
5-0 Rebekka Rún Agnarsdóttir ('45, sjálfsmark)
6-0 Vala Katrín Guðmundsdóttir ('51, sjálfsmark)
7-0 Irma Gunnþórsdóttir ('68, sjálfsmark)

Vestri tók á móti Smára í eina leik dagsins í 2. deild kvenna og fóru Ísfirðingar létt með gestina úr Kópavogi.

Vestri vann 7-0 og það vekur athygli að heimakonur skoruðu aðeins þrjú markanna, hin fjögur eru skráð sem sjálfsmörk.

Raniyah Burton var atkvæðamest með tvennu fyrir heimakonur og komst Freyja Rún Atladóttir einnig á blað.

Liðin mættust í fyrstu umferð á nýju deildartímabili.
Slapp
banner
banner