Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 18:11
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Umdeild dómaraákvörðun réði úrslitum
Mynd: EPA
Parma 2 - 3 Roma
0-1 Donyell Malen ('22 )
1-1 Gabriel Strefezza ('47 )
2-1 Mandela Keita ('87 )
2-2 Devyne Rensch ('94 )
2-3 Donyell Malen ('101, víti)
Rautt spjald: Sascha Britschgi, Parma ('99)

Parma og Roma áttust við í ítalska boltanum í dag og úr varð spennandi slagur.

Markavélin Donyell Malen náði forystunni í fyrri hálfleik eftir góða hápressu en Gabriel Strefezza jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks eftir góðan undirbúning frá Hans Nicolussi Caviglia.

Það ríkti nokkuð jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en Rómverjar skiptu um gír eftir jöfnunarmarkið hjá Strefezza. Þeim tókst þó ekki að endurheimta forystuna því Mandela Keita skoraði fyrir Parma á lokamínútunum eftir skyndisókn.

Heimamenn pökkuðu í vörn en það dugði ekki til. Devyne Rensch skoraði eftir hornspyrnu í uppbótartíma og svo fengu gestirnir dæmda afar umdeilda vítaspyrnu seint í uppbótartímanum. Daniele Chiffi dómari dæmdi fyrst brot á leikmann Roma en var sendur í skjáinn og breytti ákvörðun sinni.

Það þykir afar skrýtin ákvörðun í ljósi þess að leikmennirnir héldu og rifu í hvorn annan.

Malen skoraði af vítapunktinum og tryggði þannig dramatískan sigur fyrir Roma sem er í harðri baráttu um meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð. Parma siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner