Ísland mætti Argentínu í síðasta vináttulandsleik heimsmeistarana fyrir HM í nótt. Leikar enduðu með 3-0 sigri Argentínu.
Lionel Messi byrjaði á bekknum en kom inn á þegar um 20 mínútur voru eftir og skoraði hann úr vítaspyrnu skömmu eftir innkomu sína.
Jón Dagur Þorsteinsson skipti á treyjum við Messi að leik loknum en hann átti í harðri samkeppni við liðsfélagana.
Albert Guðmundsson var spurður, í viðtali við Fótbolta.net eftir leik, hvort að hann hefði ekki gert atlögu að treyjunni.
„Jón Dagur átti að koma inn á hægri kantinn en var allt í einu mættur í vinstri bakvörðinn til að ná í treyjuna hjá Messi á lokasekúndunum.“
„Ég var sjálfur kominn á bekkinn þarna og náði ekki að hlaupa inn á. Ég er bara stoltur af mínum manni Jóni Degi yfir að hafa náð þessu,“ sagði Albert léttur.