Hannes Þór Halldórsson var gríðarlega ánægður með frammistöðu Íslands í 2-1 sigrinum gegn Albaníu í kvöld.
„Mér fannst við hrikalega öflugir. Þetta var einn besti leikur okkar í keppninni ef ekki sá besti. Við vorum með tökin á leiknum allan tímann og hefðum getað sett fleiri mörk."
„Við fengum að sjá stöðuna inn í klefa og þetta lítur vel út. Það er gaman að vera þarna í öðru sæti og við erum í nokkuð góðum málum. Þetta er virkilega skemmtileg staða."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.























