Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 20:01
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deild kvenna: Ótrúleg dramatík á Kópavogsvelli
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 3 - 2 Valur
1-0 Líf Joostdóttir van Bemmel ('3)
1-1 Margrét Brynja Kristinsdóttir ('10)
1-2 Margrét Brynja Kristinsdóttir ('17)
2-2 Sunna Rún Sigurðardóttir ('91)
3-2 Málfríður Anna Eiríksdóttir ('95, sjálfsmark)
Rautt spjald: Hrafnhildur Salka Pálmadóttir, Valur ('18)

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 -  2 Valur

Risaslag var að ljúka í Bestu deild kvenna þar sem Íslandsmeistarar Breiðabliks tóku á móti Val og var mikið líf í byrjun og lok leiks.

Líf Joostdóttir van Bemmel náði forystunni fyrir Breiðablik snemma leiks eftir hrikaleg mistök hjá Tinnu Brá Magnúsdóttur á milli stanga Vals. Tinnu mistókst að handsama lausa sendingu frá hægri kanti, þess í stað missti hún boltann á milli fóta sinna og rann hann beint til Lífar sem skoraði í autt markið af stuttu færi.

Heimakonur gerðu sig líklegar til að tvöfalda forystuna skömmu eftir opnunarmarkið en tókst ekki. Þess í stað svöruðu gestirnir með tveimur mörkum frá Margréti Brynju Kristinsdóttur.

Fyrst skoraði Margrét Brynja eftir glæsilegt einstaklingsframtak. Hún fékk góða sendingu frá Ísabellu Söru Tryggvadóttur, tók laglegan snúning í vítateignum og þrumaði boltanum í netið.

Sjö mínútum síðar endurtóku þær stöllurnar leikinn. Ísabella Sara gaf góðan bolta í hlaupaleiðina hjá Margréti sem gerði mjög vel að klára framhjá Herdísi Höllu Guðbjartsdóttur til að taka forystuna fyrir Val.

Rétt eftir markið fékk Hrafnhildur Salka Pálmadóttir svo að líta beint rautt spjald fyrir að rífa í hárið á Barbáru Sól Gísladóttur. Valskonur urðu því leikmanni færri á 18. mínútu leiksins.

   11.05.2026 18:35
Annað rauða spjaldið fyrir að rífa í hár


Blikar fengu frábær færi til þess að jafna leikinn í fyrri hálfleik en tókst ekki svo staðan var 1-2 í leikhlé. Seinni hálfleikurinn byrjaði svo mjög rólega og virtist Valsvörnin ætla að halda út gegn Íslandsmeisturunum þrátt fyrir að vera leikmanni færri.

Það var ekki fyrr en á lokakaflanum sem Blikar vöknuðu til lífsins og tóku að skapa sér færi. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var hættulegust, fékk nokkur dauðafæri og átti skot í stöng en tókst ekki að skora í venjulegum leiktíma.

Á 89. mínútu fékk Margrét Brynja tækifæri til að fullkomna þrennu fyrir 10 leikmenn Vals og virtust gestirnir ætla að sigla sigrinum heim, en svo var ekki. Margrét klúðraði úr þröngu færi og svaraði Sunna Rún Sigurðardóttir með jöfnunarmarki á hinum endanum. Sunnu tókst að jafna metin í byrjun uppbótartímans þegar hún skallaði aukaspyrnu frá Öglu Maríu Albertsdóttur í netið af stuttu færi.

Blikar leituðu að sigurmarki á lokamínútunum og fundu það á 95. mínútu þegar Málfríður Anna Eiríksdóttir varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir þunga sókn Breiðabliks.

Lokatölur urðu því 3-2 eftir virkilega dramatískan uppbótartíma.

Breiðablik er því áfram með fullt hús stiga, 12 stig eftir 4 umferðir, á meðan Valur situr eftir með 3 stig.
Slapp
banner