„Tilfinningin er eiginlega ólýsanleg," sagði Arnar Sæberg Jónsson, í raun betur þekktur sem Hemúllinn, í Enski boltinn hlaðvarpinu hér á Fótbolta.net á dögunum. Var hann þá að ræða um það að hans menn í Coventry eru komnir upp í ensku úrvalsdeildina eftir 25 ár í burtu.
Coventry fóru með sigur af hólmi í Championship-deildinni á tímabilinu og leika því í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Coventry fóru með sigur af hólmi í Championship-deildinni á tímabilinu og leika því í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
„Þetta er búið að vera ansi langur tími þar sem við höfum ekki verið í úrvalsdeild, 25 ár er langur tími. Ég hugsa að þetta renni bara upp fyrir manni af alvöru í haust."
Hver er ástæðan fyrir því að liðið er að fara upp núna?
„Það er stöðugleiki," sagði Arnar og hló. „Það eru í raun nokkrar ástæður. Við höfum verið með tvo stjóra síðustu níu ár. Mark Robins og svo Frank Lampard. Þegar Mark Robins tekur við okkur 2017 þá erum við að falla í neðstu deild (D-deildina) og hann tekur okkur upp úr henni strax. Við förum svo upp úr League One þremur árum seinna."
Á þessum tíma, þegar Mark Robins var með liðið, þá átti vogunarsjóður félagið og lýsir Arnar því sem „skelfilegu" eignarhaldi en í nóvember 2022 keypti kaupsýslumaðurinn Doug King félagið. Hann réði til starfa Dean Austin sem yfirmann fótboltamála og sá hefur gert frábæra hluti í leikmannamálunum hjá félaginu.
Umdeild ákvörðun sem virkaði
Mark Robins var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum félagsins. Hann kom liðinu upp úr D-deild alla leið upp í Championship-deildina og var hársbreidd frá því að fara með liðið upp. Það þurfti því mikinn kjark til að reka hann en það var nákvæmlega það sem Doug King gerði eftir erfiða byrjun á 2024-25 tímabilinu. Robins var rekinn og Chelsea goðsögnin Frank Lampard tók við starfinu af honum.
„Doug King tekur þessa stóru ákvörðun og það mældist ekkert sérstaklega vel fyrir þó við höfðum verið neðarlega," sagði Arnar.
„Ég var mjög ósáttur við að Mark Robins var rekinn en ég var ekki endilega ósáttur við að Lampard var ráðinn. Hann hafði sýnt að hann gæti gert flotta hluti í Championship og var náttúrulega frábær leikmaður. Á sínu fyrsta tímabili fer hann með okkur úr 17. sæti upp í 5. sæti og við förum í umspilið þar sem við töpum gegn Sunderland í undanúrslitum."
Lampard hefur gert virkilega góða hluti með Coventry og unnið stuðningsmenn yfir á sitt band.
Rugluð saga
Saga Coventry síðustu 25 árin er mögnuð. Félagið hefur gengið í gegnum margt og mikið, og ferðalagið er sérstakt. Eins og Arnar nefnir var eignarhaldið slæmt og um tíma missti félagið heimavöll sinn sökum vangreiddar leigu. Coventry þurfti því að spila í Northampton og annars staðar.
„Þetta er tjúlluð saga," sagði Arnar í þættinum.
„Þetta ferðalag... ég er búinn að vera merkileg meyr undanfarið. Við tryggðum okkur upp gegn Blackburn og þá vorum við fjölskyldan heima að horfa á þetta og eiginkona mín hafði það að orði - við eigum fjögur börn - að við fæðinguna þá var maður glaður og kátur en hún sá mig vera meyran og gráta í fyrsta skipti í okkar sambandi þegar Bobby Thomas jafnaði gegn Blackburn og við fórum upp," sagi Arnar og hló.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
