Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga var skiljanlega hundfúll eftir tapið gegn Fylki í kvöld. Keflvíkingar náðu sér aldrei á strik í leiknum og spilamennskan olli vonbrigðum.
„Þetta er svona dæmigert og lýsandi fyrir Cocoa puffs kynslóðina að verða að einhverju lofti inná vellinum. Sérstaklega í seinni hálfleik. Þetta var alveg hrikalega dapur seinni hálfleikur og reyndar byrjum við illa fyrri hálfleikinn líka og gerum bara of mörg mistök.“
Jóhann Birnir var í leikbanni í dag og það virtist sem Keflvíkingar hafi saknað hans mikið.
„Það voru alveg nokkrir inná vellinum sem voru alveg týndir líka. Ekki bara Jói. Ég held að það hafi fyrst og fremst skipt máli að þeir sem voru að spila leikinn, en ekki þeir sem voru að horfa á hann upp í stúku. Þeir voru bara ekki nógu góðir, alltof margir. Þetta kemur fyrir. Það gerist að menn eiga svona lélegan leik en núna voru bara alltof margir inná sem áttu svona lélegan leik og þar með bara féll liðið alveg flatt á völlinn.“
Frammistaða liðsins í kvöld rímaði ekki við góða frammistöðu í síðasta leik þar sem Keflvíkingar unnu mikilvægan sigur. Kristján segist hafa undirbúið lið sitt vel og að menn hafi ekki gleymt sér í sigurvímu.
„Ég vil meina að við höfum undirbúið okkur mjög vel. Við vorum ekkert að sjúga karamelluna of lengi þrátt fyrir að hafa unnið loksins leik í deildinni. Við gerðum það bara þarna um kvöldið og kláruðum það daginn eftir á æfingu. Síðan höfum við unnið markvisst að því að gera þennan leik góðan. Tilfinningin fyrir þennan leik var mjög góð. Allt þar til að við erum að mæta inn á völlinn. Þá erum við ekki að framkvæma það sem við vorum búnir að setja upp. Eða við reyndum það og gerðum það mjög illa.“
Hægt er að horfa á viðtalið við Kristján í sjónvarpinu hér að ofan.






















