Frammistaða liðsins yfirlýsing
Stefan Alexander Ljubicic (1999) átti virkilega góðan leik með Keflavík gegn KR á sunnudag. Stefan skoraði bæði mörk Keflavíkur en þau dugðu ekki til því KR skoraði þrjú mörk og hirti öll stigin.
Framherjinn fékk talsverða gagnrýni eftir leikinn fyrir að fagna ekki markinu en hann er fyrrum leikmaður KR; lék með liðinu tímabilið 2022. Stefan ræddi við Fótbolta.net um leikinn.
Framherjinn fékk talsverða gagnrýni eftir leikinn fyrir að fagna ekki markinu en hann er fyrrum leikmaður KR; lék með liðinu tímabilið 2022. Stefan ræddi við Fótbolta.net um leikinn.
Lestu um leikinn: KR 3 - 2 Keflavík
Líður ekki eins og þeir hafi tapað
Hvernig fannst þér leikurinn gegn KR?
„Mér fannst við spila þennan leik frábærlega frá A-Ö og komum mörgum á óvart varðandi hvað við getum verið hættulegir og góðir! Okkur leið allan tímann frábærlega í þessum leik, en svo kemur þessi fimm mínútna kafli þar sem við gjörsamlega slökkvum á okkur og þeir ná þessu marki í endann sem gefur þeim þessi þrjú stig. Það er svekkjandi en samt sem áður líður okkur ekki eins og að við höfum tapað þessum leik. Þetta var ‘statement’ frammistaða frá okkur og ég er viss um að ef við spilum svona þá erum við flott lið í þessari deild."
Nærist af því að spila við öfluga leikmenn
Hvernig var að að glíma við Michael Akoto?
„Það var virkilega skemmtilegt og krefjandi að vera í stríði við hann í þessum leik, hann er nautsterkur og góður leikmaður. En það er líka bara skemmtilegt fyrir áhorfendur að sjá svona einvígi og við báðir nærumst á því að spila við svona leikmenn."
Var búinn að fagna ekki
Hvort markið er í meira uppáhaldi?
„Mér fannst eiginlega bæði mörkin mjög góð! Sem framherji þá þarftu að vera sterkur í boxinu, vera með góðar staðsetningar og hreyfingar og það er minn helsti styrkleiki myndi ég segja."
Þú hefur fengið gagnrýni fyrir að fagna ekki, var það eitthvað sem þú ákvaðst fyrir leik að þú myndir ekki fagna? Hver var hugsunin?
„Varðandi fagnið þá bara hugsaði ég fyrir svolitlu síðan að ég myndi ekkert fagna þar sem ég er fyrrum leikmaður KR. En eftir að maður fær gagnrýni út af því þá kannski er best að fagna bara næst."
Frammistaðan yfirlýsing
Varstu sáttur með eigin frammistöðu?
„Já, ég var mjög sáttur með mína frammistöðu og hjá öllum liðinu! Eins og ég sagði áðan þá var frammistaða mín og liðsins ákveðin yfirlýsing."
Búinn á því og þurfti að fara af velli
Hvað fór í gegnum hugann þegar þú varst tekinn af velli? Varstu orðinn þreyttur?
„Ég var eiginlega bara búinn á því i þessum leik, var nýbúinn að spila 120 mínútur í bikarnum og var að glíma við tvo mjög sterka hafsenta allan leikinn á móti KR."
Þurfa að halda sama hugarfari
Hvað tekur þú með þér inn í leikinn gegn Fram á föstudag?
„Við þurfum að mæta með sama hugarfar í næsta leik og öllum þessum leikjum ef við ætlum að gera eitthvað í þessari deild! Við erum með leikmennina í það og ég er viss um það að við getum sýnt hvað í okkur býr," segir Stefan.


