Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
banner
   fös 10. apríl 2026 11:52
Kári Snorrason
Svipuð umræða og um Viktor Jónsson á sínum tíma
Stefan Alexander Ljubicic.
Stefan Alexander Ljubicic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Jónsson.
Viktor Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Stefan Ljubicic er búinn að skora á undirbúningstímabilinu, ef hann dettur í gang þá gæti þetta orðið nokkuð fínt hjá Keflvíkingum,“ sagði Damir Muminovic í Besta spjallinu á Fótbolta.net.

Stefan, sem er 26 ára gamall framherji, skoraði átta mörk í 22 leikjum með Keflvíkingum í Lengjudeildinni síðasta sumar. Besta tímabil hans í efstu deild var árið 2021 með HK en þá skoraði hann sex mörk í 21 leik.

„Maður hefur svolítið beðið eftir honum. Ég er búinn að spila oft á móti honum og það er erfitt að eiga við hann. Vonandi hrekkur hann í gang í sumar,“ sagði Damir Muminovic og Jón Þór Hauksson tók orðið.

„Ég held að þetta sé að einhverju leyti svipuð umræða og um Viktor Jónsson á sínum tíma. Þeir vita nákvæmlega hvað býr í Stefani. Þeir virðast hafa og hljóta hafa mikla trú á að hann geti sprungið út í sumar og sett mörkin fyrir þá,“ segir Jón Þór sem þjálfaði Viktor í fjögur tímabil með ÍA.

„Það er undir þeim komið að setja leikinn svolítið upp þannig að hann henti honum vel. Þannig að þetta gæti orðið tímabilið hans og það er nauðsynlegt fyrir Keflvíkingana að svo verði,“ sagði Jón að lokum.
Besta spjallið: Damir, Jón Þór og Gummi Ben rýna í liðin
Slapp
banner
banner