Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   lau 15. júní 2019 19:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rúnar Kristins: Þurfum að eiga jafngóðan ef ekki betri leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög ánægður með liðið mitt á toppnum. Það er eitthvað sem alla langar til í þessari deild," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir sigur á ÍA á útivelli í Pepsi Max-deildinni í dag.

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  3 KR

KR vann aðeins einn leik í fyrstu fjórum umferðunum en þeir eru núna komnir með fjóra sigra í röð og eru á toppi deildarinnar með 17 stig, einu stigi meira en ÍA og Breiðablik.

„Það er stutt á milli þessu og það er leikur strax á miðvikudaginn, erfiður leikur gegn Val. Við þurfum að eiga jafngóðan ef ekki betri leik en í dag á miðvikudaginn."

„Taktíkin sem við settum upp var eins og leikurinn var. Við vildum liggja til baka, leyfa Skagamönnum að hafa boltann og reyna að keyra hratt á þá. Þegar tækifæri gæfust til að halda boltanum innan liðsins og þá leggjast þeir oft djúpt til baka. Það gekk ofboðslega vel í dag og strákarnir voru frábærir í því sem við vorum búnir að leggja upp," sagði Rúnar.

„Á endanum er 3-1 sigur hér gríðarlega stekur. Við sættum okkur við það þó við hefðum viljað hafa örlítið betri færanýtingu."

Viðtalið er hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner