,,Við vissum fyrirfram að við myndum eiga í vök að verjast mikið af leiknum og það reyndist vera þannig. Við fáum á okkur fjögur mörk á móti Íslandsmeisturunum sem voru töluvert betri en við í dag og á öðru tempói," sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis eftir 2 - 4 tap gegn FH í Lengjubikarnum í kvöld.
,,Það er svekkjandi við það að fá á sig fjögur klaufaleg mörk þar sem boltinn dettur fyrir þá því við erum ekki að dekka okkar menn. Í rauninni skora þeir úr seinni boltanum. Það er lítið mál að bæta fyrir það en menn sofa á verðinum."
,,Það er gott að þetta gerist í febrúar, ég vil helst ekki sjá mitt lið fá svona mörk á sig en við lokum fyrir þetta."
Guðmundur Pétursson gekk í raðir Fjölnis um síðustu helgi og var í byrjunarliðinu í dag.
,,Hann spilaði í dag í 60 mínútur og stóð sig vel. Hann er mjög góð viðbót í hópinn, sterkur og þekkir þetta vel. Við vonumst til að hann setji einhver mörk fyrir okkur í sumar."
Nánar er rætt við Ágúst í sjónvarpinu að ofan.























