City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 22:22
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Tíu leikmenn Vallecano jöfnuðu seint í uppbótartímar
Pathe Ciss bjargaði stigi fyrir Vallecano
Pathe Ciss bjargaði stigi fyrir Vallecano
Mynd: EPA
Rayo Vallecano 1 - 1 Levante
0-1 Carlos Espi ('41 )
1-1 Pathe Ciss ('90 )
Rautt spjald: Nobel Mendy, Rayo Vallecano ('53)

Tíu leikmenn Rayo Vallecano gerðu 1-1 jafntefli við Levante í La Liga á Spáni í kvöld.

Carlos Espi kom gestunum í Levante yfir undir lok fyrri hálfleiks með frábærum skalla eftir enn betri fyrirgjöf frá Iker Losada.

Levante fór með forystu inn í hálfleikinn og var enn bjartara yfir leikmönnum liðsins er Nobel Mendy, leikmaður Vallecano, sá sitt annað gula spjald og rautt eftir að slæm varnarmistök sem hann reyndi að leiðrétta með því að rífa leikmann Vallecano niður.

Vallecano manni færri og marki undir, en þeir létu ekki deigan siga og náðu í jöfnunarmark er Pathe Ciss stýrði fyrirgjöf Florian Lejeune í netið á fimmtu mínútu í uppbótartíma.

Gott stig hjá Vallecano sem er í 13. sæti með 32 stig en Levante er í næst neðsta sæti með 23 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 28 23 1 4 77 28 +49 70
2 Real Madrid 28 21 3 4 60 24 +36 66
3 Atletico Madrid 28 17 6 5 47 25 +22 57
4 Villarreal 28 17 4 7 51 33 +18 55
5 Betis 28 11 11 6 43 35 +8 44
6 Celta 28 10 11 7 38 31 +7 41
7 Real Sociedad 28 10 8 10 43 42 +1 38
8 Espanyol 28 10 7 11 35 42 -7 37
9 Getafe 28 10 5 13 23 30 -7 35
10 Athletic 28 10 5 13 30 40 -10 35
11 Osasuna 28 9 7 12 33 35 -2 34
12 Girona 28 8 10 10 31 43 -12 34
13 Vallecano 28 7 11 10 28 34 -6 32
14 Valencia 28 8 8 12 30 42 -12 32
15 Sevilla 28 8 7 13 37 47 -10 31
16 Mallorca 28 7 7 14 33 45 -12 28
17 Alaves 28 7 7 14 26 38 -12 28
18 Elche 28 5 11 12 36 45 -9 26
19 Levante 28 5 8 15 30 46 -16 23
20 Oviedo 28 4 9 15 18 44 -26 21
Athugasemdir
banner