Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Horfi á það sem mikilvægt skref í þróun liðsins"
Lengjudeildin
Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR.
Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR-ingar fagna með stuðningsmönnum sínum.
ÍR-ingar fagna með stuðningsmönnum sínum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jói og Davíð Örvar, aðstoðarmaður hans.
Jói og Davíð Örvar, aðstoðarmaður hans.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR er spáð áttunda sæti.
ÍR er spáð áttunda sæti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jói hefur náð góðum árangri með ÍR síðustu árin.
Jói hefur náð góðum árangri með ÍR síðustu árin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tímabilið leggst mjög vel í okkur," segir Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR, við Fótbolta.net.

ÍR-ingum er spáð áttunda sæti fyrir komandi tímabil. „Spáin kemur ekkert sérstaklega á óvart. Þetta er jöfn deild og mörg lið búin að styrkja sig verulega í vetur. Mér finnst vera fleiri lið með sterkari leikmannahópa í ár frá því í fyrra. En við erum nokkuð rólegir með það og reynum að einbeita okkur bara að okkar vinnu sem er að byggja upp alvöru lið."

Erfitt að vera ósáttur
ÍR-ingar voru lengi vel í toppbaráttunni á síðasta tímabili en það endaði á súran hátt þar sem þeir misstu af umspilinu.

„Síðasta tímabil var á margan hátt lærdómsríkt," segir Jóhann Birnir.

„Við byrjuðum tímabilið mjög vel og vorum komnir í góða stöðu en okkur skorti smá stöðugleika og hugsanlega heppni líka í lok tímabilsins og náðum ekki því sem við ætluðum okkur. En heilt yfir var erfitt að vera ósáttur með tímabilið þar sem við náðum í fleiri stig en árið áður, skorum fleiri og fáum á okkur færri en betur má ef duga skal."

„Í dag horfi ég á það sem mikilvægt skref í þróun liðsins og einnig fyrir okkur sem stöndum að liðinu. Við lærðum mikið því við þurftum að bregðast betur við ýmsu í fyrra, taktískt en einnig andlega og það hefur að einhverju leyti hjálpað okkur að vera skýrari í því sem við viljum gera núna. En það er þannig að hver leikur á sitt líf og það á einnig við um hvert tímabil og hlutirnir eru stundum fljótir að fara í allar áttir í þessum leik. Það sýndi sig svo sannarlega í fyrra."

Leikmenn að taka skref fram á við
Jói segir að það hafi gengið vel hjá liðinu á undirbúningstímabilinu núna en spennan er farin að magnast í Breiðholtinu.

„Það hefur nokkuð gengið vel, átt nokkuð marga góða leiki. Við höfum náð að byggja aðeins ofan á það sem við byrjuðum á í fyrra en við höfum líka misst nokkra af okkar lykilmönnum frá því í fyrra sem tóku stórt pláss innan vallar sem utan. Þannig að liðið er nokkuð breytt og dýnamíkin í hópnum er öðruvísi en í fyrra, alveg eins og hún var það fyrir síðasta tímabil þar sem við misstum einnig marga leikmenn sem léku stórt hlutverk árið áður. Mér finnst að leikmenn séu að taka skref fram á við í því að taka meiri ábyrgð, sem er mjög mikilvægt fyrir okkur sem lið."

„Ég er nokkuð sáttur við hvernig hlutirnir hafa þróast. Við höfum verið markvissir í því að bæta við okkur leikmönnum sem passa inn í leikstílinn og hópinn. Það sem við höfum líka lagt áherslu á er að bæta umgjörðina í kringum liðið í vetur. Við erum samt ekki búnir að ná að fylla í öll skörðin og erum með minni leikmannahóp í ár eins og staðan er núna, en við erum mjög ánægðir með þá sem komu til okkar í haust. Hópurinn er flottur, það er samkeppni um stöður og ákveðin blanda af reynslu og ungum leikmönnum sem vilja sanna sig og verða betri."

Trúum á það sem við erum að gera
Það má svo sannarlega búast við spennandi Lengjudeild í sumar.

„Ég held að þetta verði mjög jöfn deild," segir Jói. „Það eru mörg lið sem geta unnið hvert annað á góðum degi og lítið sem skilur á milli. Lengjudeildin er alltaf skemmtileg því að 5. sætið gefur séns á því að komast upp gerir deildina mjög áhugaverða, lið geta farið á skrið í lokin og endað í Bestu deildinni að ári eins og hefur verið raunin síðan að þetta fyrirkomulag var tekið upp, ekki ólíklegt að svo verði aftur raunin."

„Fyrst og fremst viljum við halda áfram að þróa okkar leik og vera lið sem er erfitt að spila gegn. Við viljum sjá stöðugleika í frammistöðu og að við séum að taka skref áfram sem lið. Eðlilega er markmiðið að gera betur en í fyrra og að vera í baráttunni í efri hluta deildarinnar, en aðalatriðið að taka framförum í því sem við erum að gera en það er svo hægt að meta það á margan hátt."

Eitthvað sem þú vilt bæta við að lokum?

„Við erum bara spenntir fyrir sumrinu. Það er góð tilfinning í hópnum og við hlökkum til að byrja. Vonandi náum við ásamt okkar frábæru stuðningsmönnum að skapa sömu stemningu og á síðustu árum á ÍR vellinum. Við vitum að þetta verður krefjandi eins og alltaf en við trúum á það sem við erum að gera og ætlum að mæta af fullum krafti í verkefnið," sagði Jóhann Birnir að lokum.
Slapp
banner
banner