Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 23:26
Brynjar Ingi Erluson
Náði merkum áfanga og valinn bestur - Hetja Forest fær áttu
Ollie Watkins er kominn í hundrað marka klúbbinn hjá Villa
Ollie Watkins er kominn í hundrað marka klúbbinn hjá Villa
Mynd: EPA
Morgan Gibbs-White var bestur hjá Forest
Morgan Gibbs-White var bestur hjá Forest
Mynd: EPA
Ollie Watkins, framherji Aston Villa, náði merkilegum áfanga er liðið komst í undanúrslit Evrópudeildarinnar í kvöld, en hann skoraði hundraðasta mark sitt fyrir félagið og var valinn besti maður leiksins.

Watkins skoraði fyrsta mark Villa í leiknum og þar með var hundrað marka múrinn rofinn.

Í raun magnað en Watkins kom til Villa frá Brentford fyrir sex árum síðan.

Sky Sports valdi Watkins þá mann leiksins með 8 í einkunn, en þeir Ezri Konsa, Morgan Rogers, Emi Buendia og Amadou Onana fá allir sömu einkunn.

Morgan Gibbs-White skoraði sigurmarkið og var valinn bestur hjá Nottingham Forest sem vann Porto, 1-0, en markið kom þeim inn í undanúrslitaeinvígið gegn Villa.

Hann fær átta í einkunn eins og velski landsliðsmaðurinn Neco Williams.

Nottingham Forest: Ortega (6), Aina (6), Cunha (6), Murillo (7), Williams (8), Dominguez (7), Sangare (7), Hutchinson (5), Gibbs-White (8), Ndoye (7), Wood (5).
Varamenn: Jesus (5), Hudson-Odoi (5), Milenkovic (6), Morato (6), Bakwa (6).

Porto: Costa (5), Costa (5), Silva (6), Bednarek (2), Sanusi (5), Fofana (6), Rosario (5), Gomes (6), Veiga (6), Sainz (5), Moffi (5).
Varamenn: Moura (5), Varela (5), Froholdt (5), Kiwior (5), Gul (5).



Aston Villa: Martinez (6), Cash (7), Konsa (8), Pau (7), Digne (7), Tielemans (7), Onana (8), McGinn (7), Rogers (8), Buendia (8), Watkins (8).
Varamenn: Abraham (6), Bailey (6), Sancho (6), Douglas Luiz (6), Bogarde (6).

Bologna: Ravaglia (5), Joao Mario (5), Vitik (6), Freuler (5), Casale (6), Miranda (7), Ferguson (6), Moro (6), Bernardeschi (6), Rowe (7), Castro (6).
Varamenn: Orsolini (7), Zortea (6), Sohm (6), Odgaard (6), Heggem (6).
Slapp
banner
banner