Ensku úrvalsdeildarfélögin Aston Villa og Nottingham Forest mætast í undanúrslitum Evrópudeildarinnar eftir að hafa unnið undanúrslitaeinvígi sín í kvöld. Braga og Freiburg fylgja þeim þangað.
Aston Villa var í engum vandræðum með Bologna. Það fór með 3-1 forystu inn í seinni leikinn sem var spilaður í kvöld.
Staðan var 3-0 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks á Villa Park, en Ollie Watkins skoraði fyrsta markið á 16. mínútu eftir stórskemmtilega sókn heimamanna. Morgan Rogers fékk boltann inn fyrir vinstra megin, kom honum inn á teiginn á Watkins sem skoraði af stuttu færi.
Villa fékk vítaspyrnu á 24. mínútu leiksins en Federico Ravaglia sá við Morgan Rogers af punktinum áður en boltanum var hreinsað í innkast. Bologna-menn fögnuðu af mikilli ástríðu en það varði ekkert svakalega lengi því Lucas Digne kastaði boltanum inn á teiginn á Emi Buendía sem setti boltann undir Ravaglia í markinu.
Rogers fékk uppreisn æru eftir vítaspyrnuklúðrið með því að gera þriðja mark Villa með föstu skoti vinstra megin úr teignum.
Undir lok leiks skoraði Ezri Konsa fjórða markið með föstu skoti úr teignum eftir hornspyrnu og fer Villa samanlagt áfram, 7-1, og mætir þar Nottingham Forest sem marði 1-0 sigur á Porto á City Ground.
Porto átti undir högg að sækja í leiknum en þegar aðeins átta mínútur voru liðnar sá Jan Bednarek að líta rauða spjaldið fyrir ljótt brot á Chris Wood.
Fjórum mínútum síðar skoraði Morgan Gibbs-White markið sem fleytti Forest áfram með skoti sem fór af varnarmanni og í netið, en hann fagnaði með því að lyfta treyju Elliot Anderson á loft. Anderson var ekki með í leiknum vegna móðurmissis.
Forest var betra liðið yfir allan leikinn en Porto fékk nokkur góð færi til að jafna. William Gomes og Alan Varela áttu báðir skot í þverslá en ákefðin í Porto-liðinu dvínaði þegar leið á seinni hálfleikinn og tókst Forest að halda þetta út.
Flott hjá Forest sem er komið í undanúrslit í Evrópukeppni í fyrsta sinn síðan 1984.
Portúgalska liðið Braga átti ótrúlega endurkomu í 4-2 sigri á Real Betis á Spáni.
Betis kom sér í tveggja marka forystu á rúmum 25 mínútum með mörkum frá Antony og Abde Ezzalzouli. Þremur mínútum síðar tók VAR þriðja markið af Betis vegna rangstöðu í aðdragandanum, sem hefði getað gert út um einvígið.
Braga leit á þetta sem viðvörun og náði að koma sér til baka með marki Pau Victor á 38. mínútu og í síðari hálfleik skoraði liðið tvö mörk á fjögurra mínútna kafla.
Vitor Carvalho jafnaði metin áður en Ricardo Horta skoraði úr vítaspyrnu. Gorby skoraði síðan markið sem gulltryggði sigur Braga sem er komið í undanúrslit í fyrsta sinn síðan 2011, en þá fór liðið alla leið í úrslitaleikinn áður en það tapaði fyrir Porto.
Braga mætir Freiburg í undanúrslitum en þau fara fram dagana 30. apríl og 7. maí næstkomandi.
Úrslit og markaskorarar:
Betis 2 - 4 Braga (3-5, samanlagt)
1-0 Antony ('13 )
2-0 Abde Ezzalzouli ('26 )
2-1 Pau Victor ('38 )
2-2 Vitor Carvalho ('49 )
2-3 Ricardo Horta ('53 , víti)
2-4 Gorby ('74 )
Nott. Forest 1 - 0 Porto (2-1, samanlagt)
1-0 Morgan Gibbs-White ('12 )
Rautt spjald: Jan Bednarek, Porto ('8)
Aston Villa 4 - 0 Bologna (7-1, samanlagt)
1-0 Ollie Watkins ('16 )
1-0 Morgan Rogers ('25 , Misnotað víti)
2-0 Emiliano Buendia ('26 )
3-0 Morgan Rogers ('39 )
4-0 Ezri Konsa ('89 )




