Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   fös 17. apríl 2026 09:00
Elvar Geir Magnússon
Slot: Niðurbrotinn vegna meiðsla Ekitike
Ekitike fór af velli á börum gegn PSG í Meistaradeildinni.
Ekitike fór af velli á börum gegn PSG í Meistaradeildinni.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Grannaslagur Everton og Liverpool er á dagskrá á sunnudaginn og Arne Slot, stjóri Liverpool, sinnti fjölmiðlaskyldum sínum í morgun og ræddi við fréttamenn.

Hann tjáði sig meðal annars um meiðsli sóknarmannsins Hugo Ekitike sem spilar ekki meira á tímabilinu og getur ekki verið með Frökkum á HM í sumar.


„Þetta eru hræðilegar fréttir fyrir hann, er hjá nýju félagi og náði að hafa svona mikil áhrif samstundis. Ég er niðurbrotinn fyrir hans hönd, að missa af svona mörgum sérstökum augnablikum. En hann er ekki fyrsti og ekki síðasti leikmaðurinn sem upplifir þetta og svo margir hafa komið sterkari til baka," segir Slot.

„Ég er viss um að eftir 10-15 ár þá mun hann kannski segja að þessi meiðsli hafa styrkt sig og hjálpað sér að verða enn betri en hann var áður."

Slot kom víða við á fréttamannafundinum, greindi meðal annars frá því að Joe Gomez yrði ekki með í leiknum gegn Everton og að sóknarmaðurinn Alexander Isak væri ekki orðinn klár í að spila 90 mínútur.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner
banner
banner