Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 18:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Afturelding lagði Breiðablik á Spáni
Elmar Kári Enesson Cogic.
Elmar Kári Enesson Cogic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding 3 - 1 Breiðablik
Mörk Aftureldingar: Joacim Holtan, Elmar Kári Cogic og Óðinn Bjarkason.
Mark Breiðabliks: Ívar Örn Árnason

Afturelding fór með sigur af hólmi gegn Breiðabliki í æfingaleik á Spáni í dag. Liðin eru þar í æfingaferð fyrir komandi tímabil.

Joacim Holtan skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Aftureldingu eftir einungis þrjár mínútur. Elmar Kári Enesson Cogic og Óðinn Bjarkason bættu við mörkum og komu Aftureldingu í 3-0 áður en Blikar minnkuðu muninn. Ívar Örn Árnason skoraði mark Blika.

Afturelding féll úr Bestu deildinni síðasta sumar en Blikar höfnuðu þar í fjórða sæti og stefna á toppbaráttu komandi sumar.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner