Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
banner
   fim 19. febrúar 2026 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lét Fabregas heyra það - „Þú ert barn, þú ert hálfviti"
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas.
Mynd: EPA
Það voru læti í gær þegar AC Milan og Como gerðu 1-1 jafntefli í ítölsku úrvalsdeildinni. Þetta voru slæm úrslit fyrir Milan sem er að reyna að elta nágranna sína í Inter á toppi deildarinnar. Max Allegri, stjóri Milan, beindi reiði sinni að kollega sínum, Cesc Fabregas, eftir leikinn.

Það sauð upp úr á 80. mínútu þegar Fabregas ákvað að toga í Alexis Saelemaekers, leikmann Milan, sem var að reyna að stoppa sókn Como.

Þetta var vægast sagt athyglisvert atvik en Allegri var trylltur. Fabregas fékk gult spjald en Allegri sá rauða spjaldið.

Fabregas baðst afsökunar eftir leikinn en þegar hann var búinn að ræða við fjölmiðlamenn þá rakst hann á Allegri sem var ekki enn búinn að ná sér niður.

„Þú ert barn, þú ert hálfviti. Þú ert barn sem varð þjálfari í gær," sagði Allegri en blaðamenn urðu vitni að þessu.

„Ég hefði verið reiður líka. Ég get bara beðist afsökunar og sagt að ég voni að þetta gerist aldrei aftur á ferli mínum," sagði Fabregas um atvikið.

Fabregas er eitt heitasta nafnið á þjálfaramarkaðnum eftir þann árangur sem hann hefur náð með Como.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner