Selfoss er búið að semja við ellefu unga og efnilega leikmenn í karla- og kvennaflokki.
Fimm leikmenn eru búnir að skrifa undir samninga við meistaraflokk karla og eru piltarnir allir á táningsaldri, fæddir á árunum 2007 til 2009.
Freyr Héðinsson (2007) er elstur en Maksymilian Luba og Jóhann Frans Ólason eru yngstir (2009). Gestur Helgi Snorrason og David Dabrowski eru svo fæddir 2008. Allir eru þeir uppaldir hjá Selfossi nema Jóhann Frans sem kemur úr röðum Sindra. Allir gera þeir þriggja ára samninga.
Í kvennaflokki voru Lovísa Guðrún Einarsdóttir, Auður Helga Halldórsdóttir og Brynja Líf Jónsdóttir að skrifa undir tveggja ára samninga. Þetta eru frábærar fréttir fyrir Selfoss enda léku þessar þrjár stórt hlutverk er liðið fór taplaust í gegnum 2. deildina í fyrra.
Embla Dís Gunnarsdóttir og Íris Embla Gissurardóttir eru einnig búnar að gera tveggja ára samninga við Selfoss og gerir Védís Ösp Einarsdóttir eins árs samning.
Athugasemdir


