Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fim 19. febrúar 2026 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Postecoglou: Þetta voru mín mistök
Ange Postecoglou.
Ange Postecoglou.
Mynd: EPA
Ange Postecoglou hefur viðurkennt að það voru mistök að taka við Nottingham Forest fyrr á þessu tímabili.

Nuno Espírito Santo var rekinn þegar 23 dagar voru búnir af tímabilinu og tók Postecoglou við af honum. Hann entist hins vegar bara rúman mánuð í starfi.

„Það var slæm ákvörðun hjá mér að fara þangað og ég verð að taka ábyrgð á því," sagði Postecoglou í The Overlap hlaðvarpinu.

„Ég hefði aldrei átt að taka við þessu starfi. Það leið alltof stuttur tími frá því ég fór frá Tottenham þangað til ég tók við Forest. Þetta voru mín mistök, engum öðrum að kenna."

Postecoglou var rekinn frá Tottenham síðasta sumar eftir að hafa unnið Evrópudeildina með liðinu.
Athugasemdir
banner