Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fim 19. febrúar 2026 22:15
Brynjar Ingi Erluson
Sambandsdeildin: Fiorentina með annan fótinn áfram - Logi í ágætum málum
Logi Tómasson er með eins marks forystu í síðari leikinn
Logi Tómasson er með eins marks forystu í síðari leikinn
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Fiorentina er í flottum málum
Fiorentina er í flottum málum
Mynd: EPA
Fiorentina er komið með annan fótinn í 16-liða úrslit Sambandsdeildarinnar eftir öruggan 3-0 sigur á Jagiellonia í Póllandi í kvöld.

Flórensarliðið var án Alberts Guðmundssonar og David De Gea sem eru að glíma við meiðsli en það kom ekki að sök.

Luca Ranieri stangaði boltanum í netið á 53. mínútu og skoraði Rolando Mandragora annað markið úr aukaspyrnu áður en Roberto Piccoli kom Fiorentina í frábæra stöðu fyrir seinni leikinn með vítaspyrnumarki tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.

Frábær úrslit fyrir Fiorentina sem verður vonandi búið að endurheimta Albert fyrir síðari leikinn.

Logi Tómasson var í byrjunarliði Samsunspor sem vann þolinmæðissigur á Shkendija, 1-0, í Norður-Makedóníu.

Að vísu fékk Cherif Ndiaye tækifæri til þess að koma Samsunspor yfir snemma leiks er gestirnir fengu vítaspyrnu en hann þrumaði boltanum hátt yfir markið.

Sigurmarkið gerði Marius Mouandilmadji á 77. mínútu á erfiðum útivelli og Samsunspor með forystu inn í síðari leikinn.

Drita FC 2 - 3 Celje
0-1 Armandas Kucys ('19 )
0-2 Milot Avdyli ('41 )
1-2 Blerim Krasniqi ('59 )
2-2 Liridon Balaj ('75 )
2-3 Matej Poplatnik ('90 )

Jagiellonia 0 - 3 Fiorentina
0-1 Luca Ranieri ('53 )
0-2 Rolando Mandragora ('66 )
0-3 Roberto Piccoli ('81 , víti)

Omonia 0 - 1 Rijeka
0-1 Daniel Adu-Adjei ('87 )
Rautt spjald: Tornike Morchiladze, Rijeka ('89)

Shkendija 0 - 1 Samsunspor
0-0 Cherif Ndiaye ('7 , Misnotað víti)
0-1 Marius Mouandilmadji ('77 )
Athugasemdir
banner
banner