Ensku bikarmeistararnir í Crystal Palace gerðu óvænt 1-1 jafntefli við bosníska liðið Zrinjski Mostar í Bosníu í kvöld.
Palace var talið töluvert sigurstranglegra fyrir þetta einvígi og alveg búist við því að liðið mynda stýra leiknum.
Það tók gestina tæpar 45 mínútur að komast í forystu er Jörgen Strand Larsen lagði upp fyrir Ismaila Sarr.
Staðan 1-0 í hálfleik og Palace búið að brjóta ísinn. Oliver Glasner og lærisveinar hans héldu líklega að þarna væri búið að brjóta Zrinjski-menn niður, en svo var aldeilis ekki.
Hinn 25 ára gamli Karlo Abramovic skoraði jöfnunarmark Zrinjski snemma í síðari hálfleik og líklega stærsta augnablik á ferli hans.
Á lokamínútunum vildu heimamenn fá vítaspyrnu er boltinn virtist fara í höndina á Daniel Munoz. Dómarinn var sendur að VAR-skjánum og oft leiðir það að vítaspyrnu, en Palace slapp með skrekkinn.
Palace átti fæstu skottilraunir sem liðið hefur átt í keppninni til þessa eða ellefu talsins og Glasner eflaust mjög ósáttur við frammistöðuna í þessum leik.
Þetta eru samt engin endalok fyrir Palace sem getur klárað dæmið í næstu viku og komið sér áfram í 16-liða úrslit.
Gísli Gottskálk Þórðarson kom inn af bekknum í hálfleik hjá Lech Poznan sem vann 2-0 útisigur á KuPS í Finnlandi. Finnarnir spiluðu manni færri frá 12. mínútu eftir að Joslyn Lueye-Lutumba sá rauða spjaldið.
Noah vann óvæntan 1-0 sigur á AZ Alkmaar í Armeníu. Hovhannes Hambardzumyan skoraði eina markið á 53. mínútu leiksins og þá gerðu Olomouc og Lausanne 1-1 jafntefli.
KuPS 0 - 2 Lech
0-1 Antoni Kozubal ('9 )
0-2 Taofeek Ismaheel ('41 )
Rautt spjald: Joslyn Luyeye-Lutumba, KuPS ('12)
Noah 1 - 0 AZ
1-0 Hovhannes Hambardzumyan ('53 )
Olomouc 1 - 1 Lausanne
0-1 Nathan Butler-Oyedeji ('22 )
1-1 Danijel Sturm ('58 )
Zrinjski 1 - 1 Crystal Palace
0-1 Ismaila Sarr ('44 )
1-1 Karlo Abramovic ('55 )
Athugasemdir



