Mainoo til Napoli? - Höjlund snýr ekki til baka í janúar - Þrír miðjumenn orðaðir við United - Spurs tilbúið að borga 70 milljónir punda
   sun 19. október 2025 22:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Mbappe hetjan gegn níu leikmönnum Getafe
Mynd: EPA
Það gekk mikið á þegar Real Madrid vann Getafe í spænsku deildinni í kvöld.

Hinn 37 ára gamli Allan Nyom kom inn á sem varamaður hjá Getafe en var rekinn af velli innan við mínútu síðar fyrir að brjóta á Vinicius Junior en boltinn var hvergi nærri.

Kylian Mbappe skoraði sigurmarkið þegar tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Hann fékk nóg pláss inn á teignum eftir sendingu frá Arda Guler.

Stuttu síðar missti Getafe annan leikmann af velli þegarr Alex Sancris fékk sitt annað gula spjald fyrir brot á Vinicius. Real Madrid er á toppnum með 24 stig, tveimur stigum á undan Barcelona. Getafe er í 12. sæti með 11 stig.

Real Sociedad er enn í fallsæti eftir jafntefli gegn Celta Vigo. Sociedad er í 18. sæti með sex stig en Celta Vigo er í 17. sæti með sjö stig. Orri Steinn Óskarsson var ekki með Sociedad vegna meiðsla.

Elche og Athletic Bilbao eru bæði með 14 stig í 7. og 8. sæti eftir markalaust jafntefli. Rayo Vallecano er í 10. sæti með 11 stig eftir sigur gegn Levante sem er í 14. sæti með átta stig.

Celta 1 - 1 Real Sociedad
1-0 Pablo Duran ('20 )
1-1 Carlos Soler ('89 )
Rautt spjald: Carl Starfelt, Celta ('45)

Levante 0 - 3 Rayo Vallecano
0-1 Jorge De Frutos Sebastian ('12 )
0-2 Jorge De Frutos Sebastian ('25 )
0-3 Alvaro Garcia ('65 )

Elche 0 - 0 Athletic

Getafe 0 - 1 Real Madrid
0-1 Kylian Mbappe ('80 )
Rautt spjald: ,Allan Nyom, Getafe ('77)Alex Sancris, Getafe ('84)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 12 10 1 1 26 10 +16 31
2 Barcelona 12 9 1 2 32 15 +17 28
3 Villarreal 12 8 2 2 24 10 +14 26
4 Atletico Madrid 12 7 4 1 24 11 +13 25
5 Betis 12 5 5 2 19 13 +6 20
6 Espanyol 12 5 3 4 15 15 0 18
7 Athletic 12 5 2 5 12 13 -1 17
8 Getafe 12 5 2 5 12 14 -2 17
9 Sevilla 12 5 1 6 18 19 -1 16
10 Elche 12 3 6 3 13 14 -1 15
11 Alaves 12 4 3 5 11 11 0 15
12 Vallecano 12 4 3 5 12 14 -2 15
13 Celta 12 2 7 3 15 18 -3 13
14 Real Sociedad 12 3 4 5 14 17 -3 13
15 Mallorca 12 3 3 6 12 18 -6 12
16 Osasuna 12 3 2 7 9 13 -4 11
17 Valencia 12 2 4 6 11 21 -10 10
18 Girona 12 2 4 6 11 24 -13 10
19 Levante 12 2 3 7 16 23 -7 9
20 Oviedo 12 2 2 8 7 20 -13 8
Athugasemdir
banner