Arsenal er ekki bara á toppnum þegar það kemur að stigastöfnun í ensku úrvalsdeildarinnar heldur leiðir það einnig töfluna þegar það kemur að tímanum sem það tekur að taka hornspyrnur.
Hornspyrnur og föst leikatriði er helsta vopn Arsenal en leikmenn liðsins nýta hverja einustu sekúndu í þessi atriði.
Opta segir að Arsenal hafi tekið sér 117 mínútur til að taka hornspyrnur yfir allt tímabilið, meira en öll önnur lið.
Það tekur Arsenal að meðaltali 44 sekúndur að koma boltanum í leik eftir hornspyrnur og trónir liðið einnig á toppnum á þeim lista.
Arsenal hefur skorað 21 mark eftir hornspyrnur í öllum keppnum á þessari leiktíð, þar af sextán í deildinni eða flest allra liða.
Þetta hefur verið árangursríkt hjá Arsenal sem er með 58 stig á toppnum, fimm stigum meira en Manchester City, hafnaði í efsta sæti í deildarkeppni Meistaradeildarinnar og er komið í úrslit enska deildabikarsins.
117 - Arsenal have taken a league-high total of 117 minutes to restart games from corners in the Premier League this season; indeed, they also have the longest average delay of restart from corners (44 seconds). Drained. pic.twitter.com/2cXrz2KLeK
— OptaJoe (@OptaJoe) February 19, 2026
Athugasemdir



