Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fös 20. febrúar 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn um helgina - Börsungar á heimavelli en Madrid á útivelli
Barcelona er heima gegn Levante
Barcelona er heima gegn Levante
Mynd: EPA
TItilbaráttan er í fullum gangi í La Liga á Spáni og aðeins tvö stig sem skilja stórveldin Barcelona og Real Madrid að.

Real Madrid heimsækir Osasuna klukkan 17:30 á morgun. Madrídingar unnu fyrri leikinn á Bernabeu með einu marki gegn engu.

Barcelona sem er með tveggja stiga forystu á toppnum fær Levante í heimsókn á sunnudag. Barcelona rétt marði 3-2 sigur í útileiknum með sigurmarki í uppbótartíma.

Orri Steinn Óskarsson og félagar hans í Real Sociedad mæta nýliðum Real Oviedo í Baskalandi. Orri er kominn á fullt en það er möguleiki á að hann byrji sinn fyrsta leik á árinu þessa helgi.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
20:00 Athletic - Elche

Laugardagur:
13:00 Real Sociedad - Oviedo
15:15 Betis - Vallecano
17:30 Osasuna - Real Madrid
20:00 Atletico Madrid - Espanyol

Sunnudagur:
15:15 Barcelona - Levante
17:30 Celta - Mallorca
20:00 Villarreal - Valencia
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 27 22 1 4 72 26 +46 67
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Atletico Madrid 27 16 6 5 46 25 +21 54
4 Villarreal 27 17 3 7 50 32 +18 54
5 Betis 27 11 10 6 42 34 +8 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 27 10 7 10 34 40 -6 37
8 Real Sociedad 27 9 8 10 40 41 -1 35
9 Getafe 27 10 5 12 23 29 -6 35
10 Athletic 27 10 5 12 30 37 -7 35
11 Osasuna 27 9 7 11 32 32 0 34
12 Valencia 27 8 8 11 30 41 -11 32
13 Vallecano 27 7 10 10 27 33 -6 31
14 Sevilla 27 8 7 12 35 42 -7 31
15 Girona 27 7 10 10 28 43 -15 31
16 Alaves 27 7 6 14 25 37 -12 27
17 Elche 27 5 11 11 35 41 -6 26
18 Mallorca 27 6 7 14 31 44 -13 25
19 Levante 27 5 7 15 29 45 -16 22
20 Oviedo 27 3 9 15 17 44 -27 18
Athugasemdir
banner