Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fös 20. mars 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kanadíski hópurinn sem mætir Íslandi: Jonathan David skærasta stjarnan
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Jesse Marsch landsliðsþjálfari Kanada, sem stýrði Leeds United í eitt ár í ensku úrvalsdeildinni, er búinn að velja 26 manna hóp fyrir æfingalandsleikina gegn Íslandi og Túnis sem fara fram í landsleikjaglugganum í næstu viku.

Kanada er að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramótið á heimavelli sem verður haldið í Norður-Ameríku.

Það vantar tvo mikilvæga hlekki í byrjunarliðið hjá Kanada þar sem bæði fyrirliðinn og varafyrirliðinn eru fjarverandi vegna meiðsla, þeir Alphonso Davies hjá FC Bayern og Stephe Eustaqio sem leikur með Los Angeles FC á lánssamningi frá portúgalska stórveldinu Porto.

Þekktasti leikmaður hópsins hjá Kanada er án vafa Jonathan David, fyrrum framherji Lille sem er í dag hjá Juventus, en í hópnum má einnig finna menn á borð við Ismaël Koné sem hefur verið að gera flotta hluti með Sassuolo í efstu deild á Ítalíu og Tajon Buchanan kantmann Villarreal. Tani Oluwaseyi, samherji Buchanan hjá Villarreal, er einnig í hópnum ásamt Cyle Larin sem leikur á láni hjá Southampton og Daniel Jebbison sem er á láni hjá Preston.

Þar að auki er hinn 35 ára gamli Junior Hoilett, sem hefur leikið með þremur mismunandi félagsliðum í ensku úrvalsdeildinni, í hópnum. Hann er á mála hjá Swindon Town í League Two þetta tímabilið.

   18.03.2026 13:12
Landsliðshópurinn - Fyrirliðinn snýr aftur ásamt Gylfa en enginn Albert


Markverðir:
Maxime Crepeau (Orlando City)
Owen Goodman (Barnsley, á láni frá Crystal Palace)
Dayne St. Clair (Inter Miami)

Varnarmenn:
Derek Cornelius (Rangers, á láni frá Marseille)
Luc de Fougerolles (Dender, á láni frá Fulham)
Richie Laryea (Toronto FC)
Jahkeele Marshall-Rutty (Red Bull New York)
Kamal Miller (Portland Timbers)
Ralph Priso (Vancouver Whitecaps)
Niko Sigur (Hajduk Split)
Joel Waterman (Chicago Fire)

Miðjumenn:
Ali Ahmed (Norwich City)
Tajon Buchanan (Villarreal)
Mathieu Choiniere (Los Angeles FC)
Marcelo Flores (Tigres)
David “Junior” Hoilett (Swindon Town)
Ismael Kone (Sassuolo)
Liam Millar (Hull City)
Jonathan Osorio (Toronto FC)
Nathan Saliba (Anderlecht)

Sóknarmenn:
Jonathan David (Juventus)
Daniel Jebbison (Preston, á láni frá Bournemouth)
Cyle Larin (Southampton, á láni frá Mallorca)
Tani Oluwaseyi (Villarreal)
Bim Pepple (Plymouth)
Jacen Russell-Rowe (Toulouse)
Athugasemdir
banner