Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Guardiola þarf að hætta að tala í gátum"
Pep Guardiola, stjóri Man City.
Pep Guardiola, stjóri Man City.
Mynd: EPA
„Pep Guardiola þarf að hætta að tala í gátum og gefa Manchester City svar."

Svona hefst grein sem Martin Blackburn, blaðamaður The Sun skrifar.

Eftir tap Man City gegn Real Madrid í Meistaradeildinni er mikið fjallað um framtíð Guardiola í enskum fjölmiðlum. City er líka langt á eftir Arsenal í deildinni og því spurning hvort tveir stærstu titlarnir séu farnir.

Í enskum fjölmiðlum er rætt og ritað um að Guardiola muni taka ákvörðun um framtíð sína eftir úrslitaleik deildabikarsins um helgina. Framundan er landsleikjahlé þar sem hann mun hugsa enn frekar um hvað hann vilji gera.

„Í nokkra mánuði hefur 55 ára gamli stjórinn velt því fyrir sér hvort hann muni stjórna liðinu á næsta tímabili. Og hann var aftur kominn í sama pakka eftir að lið hans tapaði fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld," segir í grein Sun og bætir blaðamaðurinn við að hann og kollegar hans hafi klórað sér í hausnum yfir því hvernig Guardiola var að orða hlutina.

Guardiola, sem er einn sigursælasti stjóri fótboltasögunnar, hefur stýrt Man City frá 2016 með frábærum árangri. Er þetta hans síðasta tímabil með liðið?
Athugasemdir
banner
banner
banner