Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   mið 18. mars 2026 17:02
Elvar Geir Magnússon
Newcastle og Villa girnast Thuram
Mynd: EPA
Ensku úrvalsdeildarfélögin Newcastle og Aston Villa hafa áhuga á að fá franska sóknarmanninn Marcus Thuram frá Inter.

Félög í Sádi-Arabíu hafa einnig áhuga á Thuram en hann ku hafa meiri áhuga á að fara í enska boltann.

Thuram hefur skorað 12 mörk og átt 5 stoðsendingar í 35 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili og samningur hans er með 85 milljóna evra riftunarákvæði.

Þessi 28 ára leikmaður hefur aðeins skorað eitt mark í síðustu níu leikjum í ítölsku A-deildinni.

Thuram er sagður með fulla einbeitingu á lokakafla tímabilsins með Inter og muni svo skoðar framtíð sína. Hann er með samning til sumarsins 2028.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner