„Miðað við "effortið" sem við lögðum í leikinn og sérstaklega að vera einum færri í tuttugu mínútur og nánast halda það út. Það hefði verið mjög sterkt og við hefðum getað tekið mikið með okkur úr því. En þetta er svona og við þurfum bara að laga þessi mistök á ögurstundu. Þá er ég viss um að við getum farið að sækja úrslit. “ Voru orð Sverris Inga Ingasonar miðvarðar Íslands um hina svekkjandi tilfinningu eftir 1-0 tap Íslands gegn Portúgal í Laugardal í kvöld þar sem sigurmark Portúgal kom rétt undir lok venjulegs leiktíma.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 1 Portúgal
Cristiano Ronaldo sem hafði sig lítið frammi heilt yfir í leiknum í dag reyndist hetja Portúgala þegar mest á reyndi undir lok leiks. Hvernig horfði markið við Sverri? Hafði þreyta þar einhver áhrif? En liðið hafði varist gríðarlega vel í leiknum til þessa.
„Þetta var bara fast leikatriði þar sem þeir ná að spila á okkur. Ég er búinn að sjá einhverja mynd af þessu og þetta er voðalega tæpt og það er oft svona einhverjir millimetrar sem skera á milli og við þurfum að laga það og fá þessa millimetra þegar við förum að sækja eitthvað. “
Liðið fer stigalaust úr þessum glugga eftir tvö töp. Staðreynd sem er ennþá meira svekkjandi þar sem frammistaða liðsins hefur alls ekki verið slæm heilt yfir.
„Algjörlega því frammstaðan hefur verið mjög góð, sérstaklega í fyrri hálfleik við fáum sénsanna þar til að skora og frammistaðan í níutíu mínútur í dag var mjög góð þannig að við þurftum níutíu plús uppbót þannig að við stefnum á að gera það í næsta glugga. “
Sagði Sverrir Ingi en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir






















