,,Það var erfitt að spila einum færri meirihlutann af seinni hálfleik og mér finnst við eiga skilið einn punkt úr þessum leik miðað við hvernig þetta þróaðist allt saman," sagði Sveinbjörn Jónasson framherji Þróttar eftir 2-1 tap gegn Grindavík á útivelli í kvöld.
Aron Ýmir Pétursson leikmaður Þróttar sá rauða spjaldið á 58. mínútu en það mátti samt ekki sjá liðsmuninn á leiknum.
,,Við vorum eiginlega betri eftir að við urðum einum færri," sagði Sveinbjörn en eftir það bökkuðu Grindvíkingar.
,,Þá fengum við bara meiri tíma á miðjunni og út um allan völl. Við hefðum alveg getað nýtt okkur síðasta hálftímann til að gera eitthvað að viti."
Aðspurður út í atvikið þegar Aron Ýmir fékk sitt annað gula spjald sagði Sveinbjörn:
,,Fyrir mér var þetta algjör steypa, bara eitthvað mjög saklaust og eins vægt og gulu spjöldin verða."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.






















