Benoný Breki Andrésson ræddi við Fótbolta.net eftir dramatískan 4-2 sigur Stockport County gegn Wigan Athletic í League One deild enska boltans í dag.
Hann ræddi um meiðslin sín og komandi endurhæfingu áður en hann sneri sér að æskuvini sínum úr yngri flokkum Gróttu, honum Orra Steini Óskarssyni sem er að gera frábæra hluti með Real Sociedad í spænska boltanum og skoraði tvennu í dag. Benoný er ári yngri en Orri.
21.02.2026 15:01
Spánn: Grátlegt jafntefli í ótrúlegri innkomu Orra Steins
Orri var frá í fjóra mánuði vegna meiðsla en hefur komið gríðarlega sterkur til baka og er búinn að skora fjögur mörk í síðustu fimm leikjum sem hann hefur komið inn af bekknum.
„Það er gaman að sjá hvað hann er að spila vel núna, hann er líka búinn að vera mjög óheppinn með meiðsli og það er gott að hann sé byrjaður að skora aftur," sagði Benoný.
„Ég var með honum í yngri flokkunum í Gróttu og maður sá alltaf að hann var að fara langt. Maður var með hann fyrir framan sig í sóknarlínunni og það var gaman að spila með honum. Maður sá gæðin í honum, hann á alveg skilið að vera þar sem hann er í dag.
„Ég reyni að fylgjast mikið með honum, ég horfi alltaf á öll mörk sem hann skorar."
21.02.2026 20:31
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
Athugasemdir



