Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
   fim 21. mars 2013 14:53
Elvar Geir Magnússon
Sölvi: Gerði allt til að vera í toppstandi fyrir þennan leik
Elvar Geir Magnússon skrifar frá Slóveníu
Tekkland
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Mér líst mjög vel á þetta. Þetta er mikilvægur leikur fyrir okkur. Sigur þýðir að við erum komnir í mjög góða stöðu," segir varnarmaðurinn Sölvi Geir Ottesen um leikinn gegn Slóveníu á morgun.

Sölvi Geir hefur verið úti í kuldanum hjá FC Kaupmannahöfn en hann bjóst þrátt fyrir það við því að vera í landsliðshópnum.

,,Já, ég bjóst alveg við að vera í þessum hóp. Ég tel mig vera nógu góðan til að vera í þessum hóp þó að ég sé ekki að spila hvern einasta leik í deildinni," sagði Sölvi en hann segist vera í fínu formi.

,,Ég var með í þremur æfingaleikjum fyrir mótið og síðan er ég búinn að spila tvo varaliðsleiki. Það er auðvitað ekki á sama tempói og í deildinni en ég fæ helling út úr því. Ég legg mig allan fram, ég vissi af þessum landsleik sem er að koma og gerði allt til að vera í toppstandi fyrir þennan leik."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner