Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Segir Eckert vita um njósnirnar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: Daily Mail
Rannsókn á starfsferlum Southampton er í fullum gangi eftir að leikgreinandi félagsins var gómaður við að njósna ólöglega um æfingu hjá Middlesbrough fyrir mikilvæga viðureign liðanna í umspili Championship deildarinnar.

Búið er að dæma Southampton úr leik í umspilinu og byrjar liðið með fjögur mínusstig á næstu leiktíð en núna er verið að rannsaka hvort einhverjir einstaklingar eigi skilið að vera dæmdir í bann fyrir athæfið.

   21.05.2026 09:56
Frekari rannsókn á njósnamálinu


Rannsóknin hefur hingað til leitt í ljós að Tonda Eckert, stjóri Southampton, vissi af njósnunum og gaf persónulega leyfi fyrir þeim. Í skýrslu um rannsóknina kemur fram að félagið framdi reglubrot sín með einbeittum brotavilja.

Southampton notaði unga og óreynda starfsnema hjá sér í njósnirnar. Sá sem var gripinn við að njósna um Middlesbrough heitir William Salt og á eftir að koma í ljós hversu þunga refsingu hann fær vegna málsins.

Eckert er 33 ára Þjóðverji sem hefur gert magnaða hluti með Southampton á tímabilinu. Hann tók við liðinu um mitt tímabil þegar það var fjórum stigum frá fallsvæðinu og gjörsnéri genginu við. Lærlingar hans unnu hvern leikinn á fætur öðrum og enduðu að lokum aðeins fjórum stigum frá því að fara beint upp um deild.

Hann stýrði liðinu alla leið í undanúrslit FA bikarsins eftir að hafa slegið Englandsmeistara Arsenal óvænt úr leik í 8-liða úrslitum. Lærlingar hans töpuðu naumlega fyrir Manchester City í undanúrslitum.

Eftir pressu frá neðri deildum enska boltans (EFL) viðurkenndi Southampton þrjú brot á reglum sem voru settar á laggirnar árið 2019 til að sporna við njósnum. Félagið viðurkenndi að hafa sent mann á æfingasvæði Middlesbrough til að komast að því hvort ónefndur leikmaður sem hafði verið að glíma við meiðsli (líklegast Hayden Hackney) gæti tekið þátt í leiknum.

Southampton viðurkenndi einnig ólöglegar njósnir fyrir leiki gegn Oxford og Ipswich og er félagið grunað um að hafa njósnað ólöglega um æfingar fyrir talsvert fleiri leiki án þess að það hafi komist upp.

   21.05.2026 00:26
Áfrýjun Southampton bar ekki árangur

Slapp
banner