Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
   fim 22. júní 2023 23:24
Sölvi Haraldsson
Jörgen Pettersen: Við vissum að markið væri á leiðinni
Lengjudeildin
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

„Þetta var mjög erfiður leikur. Grótta er gott lið og hélt vel í boltann, við þurftum að vinna mjög mikið í dag. En við erum með góðan liðsanda og við náðum að sækja þessi þrjú stig.“ sagði Jörgen Pettersen, miðjumaður Þróttar, eftir 2-1 sigur á Gróttu í kvöld.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 -  1 Grótta

Hvernig var að spila í leiknum? Maður beið bara eftir mörkunum í seinni hálfleik.

„Ég held að það sé útaf því að við erum í mjög góðu formi og hlaupum endalaust og gefumst aldrei upp. Við trúum á okkur og við vissum að markið væri að koma við bara þurftum að halda áfram og hafa trú.“

Sigurmarkið þitt kom beint upp úr pressunni ykkar. Var þetta eitthvað sem þjálfararnir töluðu um fyrir leik að mæta þeim hátt á vellinum og pressa þá?

„Við horfðum á vídeó í gær hvernig þeir spila út frá marki þannig við vissum hvernig þeir myndu spila út frá marki í markspyrnum. Þessar markspyrnur voru árangursríkar nánast allan leikinn en við vissum að við þurftum bara eitt færi og það kom.“

Fannst þér þessi þrjú stig vera verðskulduð?

„Já það held ég. Við vorum betra liðið og þetta er heimavöllurinn okkar og við viljum spila svona á honum. Berjast til enda fyrir þrjú stig þannig já þetta voru verðskulduð þrjú stig fannst mér.“

Hvernig hefur þetta verið fyrir leikmennina í sumar þar sem margir voru að spá ykkur í fallsæti en þið virðist bara vera gera góða hluti.

„Við höfum ekkert verið að eyða tíma í að fylgjast með þessum spám en það er skiljanlegt að giska á það að nýliðinn endi í fallsæti. En við erum ekkert að stressa okkur á þessu og við viljum bara spila okkar leik og fá sem flest þrjú stig.“

Erfiður leikur framundan á útivelli gegn Grindavík, hvernig líður þér með það verkefni sem er framundan?

„Ég er mjög spenntur að fara þangað. Þetta er erfiður völlur en ég spilaði þarna í fyrra með ÍR í Mjólkurbikarnum þar sem við unnum 2-1 þannig ég eá góðar minningar þaðan. Þetta er lið með góða leikmenn en við eigum líka góða leikmenn og ætlum að gefa þeim hörkuslag.“ sagði Jörgen Pettersen, miðjumaður Þróttar, eftir sætan 2-1 sigur á Gróttu.

Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.


Athugasemdir
banner