Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
   sun 22. júní 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Öll brasilísku liðin á toppnum
Mynd: EPA
Fluminense gerði markalaust jafntefli gegn Dortmund í fyrstu umferð á HM félagsliða.

Dortmund lagði Mamelodi Sundowns í gær og Fluminense lagði Ulsan í gærkvöldi. Fluminense er á toppnum með fjögur stig, jafn mörg stig og Dortmund. Ulsan er með þrjú stig og Mamelodi á botninum án stiga.

Það er athyglisvert að sjá að öll brasilísku liðin Fluminense, Palmeiras, Botafogo og Flamengo eru á toppnum í sínum riðlum eftir fyrstu tvær umferðirnar.

River Plate og Monterrey gerðu markalaust jafntefli í nótt. River Plate er á toppi E-riðils með fjögur stig eins og Inter. Monterrey er með tvö stig og Urawa Red Diamonds á botninum án stiga.

River Plate 0 - 0 Monterrey
Rautt spjald: Kevin Castano, River Plate ('90)

Fluminense 4 - 2 Ulsan
1-0 Jhon Arias
1-1 Lee Jin-Hyun
1-2 Um Won Sang
2-2 Nonato
3-2 Juan Freytes
4-2 Keno
Athugasemdir
banner
banner