Antony, leikmaður Man Utd, er eftirsóttur en ítalska félagið Como vill fá hann til sín.
Fabrizio Romano greinir frá því að Como sé búið að reyna sannfæra brasilíska vængmanninn um að ganga til liðs við félagið.
Fabrizio Romano greinir frá því að Como sé búið að reyna sannfæra brasilíska vængmanninn um að ganga til liðs við félagið.
Hann er hins vegar ekki spenntur fyrir því. Antony gekk til liðs við Real Betis í janúar á láni frá United og hann vill vera áfram hjá spænska liðinu.
Antony lék 26 leiki fyrir Betis, skoraði níu mörk og lagði upp fimm.
Athugasemdir